13.11.1934
Neðri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í C-deild Alþingistíðinda. (4071)
122. mál, Kreppulánasjóður
Ólafur Thors:
Ég hygg, að þetta frv. sé eitt þeirra frv., sem borin eru fram á Alþingi í þeim tilgangi sérstaklega að bekkjast til við andstæðinga stj. Frá því sjónarmiði mun ég taka afstöðu til málsins.
Vér er kunnugt um, að allir, sem unnið hafa að þessum störfum, hafa gert það hver öðrum betur. Er enginn vafi á því, að samningur sá, er fyrrv. ráðh., Þorteinn Briem, gerði við þessa menn, á að gilda til ársloka 1935. Ég er viss um, að ef hér hefðu átt hlut að máli stuðningsmenn stj., þá hefði slíkt frv. ekki komið fram, jafnvel þótt þeir hefðu ekki lagt fram slíkt starf sem þessir menn. Ég er því andvígur frv. eins og það lá fyrir, en get þó greitt atkv. með dagskrártill., ef skilja má hana þannig, að launin skuli haldast óbreytt til ársloka 1935. Að þeim tíma liðnum geri ég ráð fyrir, að störfum þessum verði að mestu lokið, og er þá tími til að gera nýja ákvörðun í málinu, en fyrr ekki.
Það er rétt, að aðalbankastjóri Búnaðarbankans hefir mikil laun, meiri en flestir aðrir, enda þótt ég haldi, að hann beri ekki meira úr býtum en sumir þeir, sem hæst gala hér. Þetta get ég fullyrt fyrir guði og mönnum og staðið við á dómsdegi. En það er e. t. v. minna leyndarmál um laun þessa manns en sumra af hinum. Það má vel vera, að bankastjórinn hafi óeðlilega há laun, miðað við það, sem okkar fátæka þjóðfélag getur greitt sínum starfsmönnum. En það liggur ekki í því, að laun hans við Kreppulánasjóð séu of há, heldur liggur það í hinu, að hann hefir of há laun sem búnaðarbankastj. Í því liggur engin till. fyrir hér, svo mönnum gefst ekki kostur á að taka afstöðu til þeirrar hliðar málsins. Það má vel vera, að orðalag dagskrártill. útiloki skilning minn á efni hennar hvað snertir aðalbankastjóra Búnaðarbankans. Ef svo er, þá mun ég greiða atkv. á móti henni, en er reiðubúinn til þess að ræða við þessa flm. og aðra úr stjórnarfl. um hækkun á launum þessara manna og annarn hálaunanmanna, er raðað var á bitlingajötuna á fyrri stjórnartíð þessara flokka á árunum 1927—30. Um það er ég reiðubúinn til samninga, en ekki ef undir yfirskini helgrar réttlætistilfinningar er ráðizt að pólitískum andstæðing, sem innt hefir mikið og gott starf af hendi.