06.12.1934
Neðri deild: 52. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í C-deild Alþingistíðinda. (4141)

128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna

Forseti (JörB):

Ég vil mjög beina því til hv. þdm., að þeir lengi nú ekki umr. frekar um þetta efni. En viðvíkjandi ósk hv. þm. Vestm. skal ég geta þess, að það væri mjög æskilegt, ef fyrir lægju álit frá báðum nefndarhlutum, áður en málið er tekið á dagskrá. Ég skal svo kynna mér, hvernig ástatt er hjá hv. meiri hl. sjútvn., og tala við hv. þm. Vestm. að þeim upplýsingum fengnum.