14.12.1934
Neðri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í C-deild Alþingistíðinda. (4170)
128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna
Ólafur Thors:
Ég vil leyfa mér að bera fram brtt. við rökst. dagskrána frá meiri hl. sjútv. Hún hljóðar þannig:
„Upphaf dagskrártill. orðist þannig: „Þar eð umsagnir frá bankastjórum Landsbanka Íslands og Útvegsbanka Íslands h/f um, að eigi þurfi o. s. frv.“
Mín till. gengur út á, að úr rökst. dagskránni falli þessi orð: „Þar eð vandræði sjávarútvegsins yrðu ekki leyst nema að mjög litlu leyti með afgreiðslu frv. þessa og — “.
Rökst. dagskráin yrði þá svo hljóðandi, ef mín brtt. verður samþ., með leyfi hæstv. forseta:
„Þar eð fyrir liggja umsagnir frá bankastjórum Landsbanka Íslands og Útvegsbanka Íslands h/f um, að eigi þurfi að óttast stöðvun á útgerð landamanna eða eigendaskipti umfram venju, vegna skulda, fyrir næstu vertíð, og ennfremur að skuldaskil kæmu eigi heldur til framkvæmda fyrir vertíðina, þó frv. næði fram að ganga, og í trausti þess, að ríkisstjórnin leggi fyrir næsta þing framhaldandi tillögur um viðreisn sjávar útvegsins, þar á meðal tillögur um aðstoð ríkisins til skuldaskila vélbátaútvegsins, er fram fari á næsta ári, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“
Með þessu vil ég forða hæstv. Alþingi frá að kveða upp þann dóm, að vandræði sjávarútvegsins verði ekki nema að mjög litlu leyti leyst með þessu frv. Ég held, að ekki sé rétt að gefa neinar yfirlýsingar um, að skuldaskilin létti ekki vandræðunum af sjávarútveginum. Ég held einmitt, að þau muni þvert á móti miða mikið til bóta, og þá skoðun mína rökstuddi ég áðan með því að sýna fram á, að einmitt skuldaskilin væru skilyrði fyrir því, að verðið á notaþörfum útvegsins lækkaði.
Ef þessi brtt. mín verður samþ., skal ég fyrir mitt leyti samþ. rökst. dagskrána úr því sem komið er.