26.10.1934
Neðri deild: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í C-deild Alþingistíðinda. (4247)

100. mál, framfærslulög

Jóhann Jósefsson:

Ég vil taka undir þau ummæli hv. 6. landsk., að hér sé ekki um flokksmál að ræða, og ósk hans um samvinnu flokkanna að lausn þessa máls. Það er sannarlega ekki of oft, að slíkar raddir heyrast hér á þingi. Ég vil láta þá skoðun mína í ljós, að í höfuðatriðum er ég samþykkur þessu frv. á þskj. 195, þó að ég búist við því, að það þurfi að taka ýmsum breytingum. Ég vil ennfremur taka undir þá ósk hv. 6. landsk., að hv. n. gefi máli þessu þá afgreiðslu, að líkindi séu til, að það nái fram að ganga nú á þinginu. Raddir hafa komið fram um það, að ekki sé hægt að leysa þessi mál án þess að gera gagngerðar breytingar á tryggingarlöggjöfinni um leið. En þessi tvö mál er að mínu áliti hægt að leysa alveg óháð hvort öðru. Fátækral. verður að færa í betra horf, og væri vel til fallið, að þetta þing stigi drjúgt spor í áttina til betra skipulags á því sviði.