09.10.1934
Neðri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (4404)

24. mál, fátækralög

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Ég mun ekki svara miklu að þessu sinni. En það var eitt atriði í ræðu hv. þm., sem ég vildi drepa á. Hann var að tala um það, að sér fyndist undarlegt, að fyrsti ráðh. jafnaðurmannaflokksins skyldi bera fram svona nauðalítilfjörlega breyt. á fátækralöggjöfinni. Ég hefi vitanlega svarað þessu áður, en skal rifja það upp aftur fyrir þessum hv. þm., úr því að hann hefir verið svo mjög annars hugar, þá er ég flutti ræðu mína, að hann hefir ekki mátt vera að taka eftir því, sem ég sagði. Ég lýsti því yfir áðan, að ég myndi flytja á næsta þingi stóran lagabálk um þessi mál. Að ég gat ekki gert það nú þegar á þessu þingi, var eðlilega sökum þess, hve tíminn var naumur, og ég veit, að hv. þm. skilur það vel, að 2 mánuðir eru ekki nægilega langur tími til þess að semja og umsteypa stórum lagabálkum. Það, sem ég því geri nú, er aðeins að afnema stærsta smánarblettinn á fátækralöggjöfinni, — en það tel ég vera fátækraflutninginn. Að þessi breyt. hafi áhrif á fjárhagsafkomu sveitarfélaganna, er hin mesta firra, og ég er þess fullviss, að hv. þm. veit betur í þessu efni en hann talar.