18.10.1934
Neðri deild: 13. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í C-deild Alþingistíðinda. (4600)
70. mál, strandferðir
Ólafur Thors:
Ég þarf ekki að flytja langt mál. Hv. þm. Barð. hélt því fram, að það væri ósannað mál, að milliríkjasamningar væru þessu frv. til hindrunar. En um þetta liggur fyrir alveg skýlaus yfirlýsing form. utanrmn., enda er þetta alveg tvímælalaust.
Ég mun eigi deila við hv. þm. N.-Þ. um. hversu gott vit ég hafi á landbúnaðarmálum. En ég hefi þó áreiðanlega meiri reynslu í því efni en hann eftir 10 ára þingsetu. Ég mun eigi heldur bera mig saman við hann eða jafna mér við hann að því er snertir manngildi, menntun og þekkingu. Í því efni kysi ég mér fremur að jafnast við annan mann en hann. Ég gat um hina háðulegu útreið, sem frv. hans um frystihúsin fékk hjá landbn. Ég hefi víst hitt þar á auman blett. Þetta mun hafa verið jómfrúfrumvarp hans, og því hefir það tekið hann sárt að fá það endursent frá landbn. sem gamaljómfrú. En það er fremur skopleg skýring hjá þessum hv. þm., er hann segir, að hann hafi borið frv. fram í því skyni, að því væri vísað frá og honum sagt, að þetta væri í lögum áður. Þetta er svo broslegt hjá hv. þm., að það gerir ekki annað en að auka á háðung hans.