10.12.1934
Efri deild: 57. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í C-deild Alþingistíðinda. (4967)

171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Þetta frv. er að vísu fram komið vegna tilmæla hæstv. forsrh., en ég hygg þó, að ég geti svarað fyrirspurn hv. 1. þm. Reykv., hvers vegna frestað er þinghaldinu. Það er að sjálfsögðu í fyrsta lagi vegna þess, að þessu þingi verður ekki lokið fyrr en öðruhvoru megin við áramót, og stj. lítur svo á, að ekki veiti af þeim tíma til miðs marz til þess að undirbúa þingmál, og hygg ég, að hv. þd. geti fallizt á, að það sé rétt. Ég get sagt það persónulegu fyrir mig, að ég hefði heldur kosið, að þinghaldinu væri frestað öllu lengur, jafnvel fram til mánaðamóta marz og apríl. Mér þykir ekki ósennilegt, að ástandið geti orðið þannig á næsta ári, að menn telji ráðlegt, þó þingið komi saman í marz, að ljúka því ekki, heldur fresta afgreiðslu fjárl. Mér sýnist fullar horfur vera á því, að ástandið geti orðið þannig, að slíkt verði óhjákvæmilegt. Ef svo yrði, væri ástæða til að athuga, hvort ekki væri heppilegast að taka upp haustþing, eins og komið hefir til tals. Að því er snertir fjárl. er það bezt, þó ég játi, að ýms vandkvæði séu á því.