15.12.1934
Sameinað þing: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í D-deild Alþingistíðinda. (5053)

175. mál, sala á íslenskum afurðum í Danmörku

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég tel sjálfsagt, ef þál. þessi verður samþ., að leggja fyrir stjórn síldarbræðsluverksmiðjanna að gera það, sem í till. segir. Jafnframt skal ég taka það fram, að ég tel, að það gæti orðið okkur til hagsbóta á ýmsan hátt, ef hægt yrði að tryggja okkur fastan markað fyrir þessa framleiðsluvöru okkar í Danmörku.