17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í D-deild Alþingistíðinda. (5077)

86. mál, Vestmannaeyjavitinn á Stórhöfða

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Ég veit ekki, hvort fleiri af hv. meðnm. mínum úr sjútvn. ætla að standa hér upp og afneita fylgi sínu við till. Báðir hv. meðnm. mínir í sjútvn., sem talað hafa, skrifuðu undir greinilegt nál., þar sem lagt er til, að bætt sé úr því neyðarástandi, sem sjómenn í Vestmannaeyjum eiga við að búa í þessum efnum. Það er tilfinnanlegt, að það skuli falla í hlutskipti þessa eina manns, sem situr hér í hv. deild með sjómannapróf, að sporna við því, að vélbátaflotinn í Vestmannaeyjum fái þá einu vitaumbót, sem kemur honum að verulegum notum. „Án er illt gengi nema heiman hafi“, og svo mun og reynast hér. Það er vitanlegt, að af miðunarstöð í Vestmannaeyjum hefir vélbátaflotinn engar leiðbeiningar. Það eru aðeins 2—3 bátar, sem fengið hafa tæki, sem getur verið, að eitthvað megi styðjast við, ef miðunarstöð væri til; en hinir 90 vélbátarnir eru í jafnmiklum vandræðum fyrir því.

Ég vil biðja hæstv. forseta að afsaka, að ég hefi lengt umr. um þetta mál.