17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (5094)
86. mál, Vestmannaeyjavitinn á Stórhöfða
5) Forseti:
Það er að vísu svo, að ályktun þessi felur í sér fjárútlát í fjárl., sem ekki gilda nú, svo framarlega sem ekki finnst heimild fyrir greiðslu þessari annarsstaðar. Þetta er vitanlega formgalli, en mér virðist þó, að skoða megi þál. þessa sem áskorun um peningagreiðslu, sem ennþá hefir ekki formlega verið veitt. En sakir þessa, að hér er farið fram á að greiða peninga, sem ekki hafa verið heimilaðir ennþá, þá treysti ég mér ekki til að greiða atkv., og sit því hjá.