12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í B-deild Alþingistíðinda. (570)

8. mál, tekju- og eignarskattsauki

Ólafur Thors:

Ég hefi ekki sagt, að afstaða Sjálfstfl. til þessu sérstaka frv. þurfi að vera sama eðlis og afstaða flokksins til annara skattafrv., sem fyrir þinginu liggja og vita að fjáröflun fyrir komandi ár. Hinsvegar hefir verið álitið rétt, að fram kæmi af hendi Sjálfstfl. sú yfirlýsing, sem ég hefi nú gefið hér í hv. d., og var talið rétt, að hún kæmi fram einmitt nú, þegar tekið var til 2. umr. hið fyrsta af frv. hæstv. stj., sem fer fram á tekjuauka.