10.10.1934
Efri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í B-deild Alþingistíðinda. (692)

21. mál, heimild rannsóknarstofnana ríkisins til lyfjasölu

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Það er af mörgum talið ekki með öllu tvímælalaust, að með þessari framleiðslu rannsóknarstofunnar sé gengið á rétt lyfjabúða, er þeim er veittur með sérstökum 1. Þó að ekki hafi til þess komið enn, gæti svo farið, að hér yrði einhver árekstur. Ég get upplýst það, að bæði landlæknir og forstöðumaður rannsóknarstofunnar, Níels Dungal, eru sammála frv. um þetta.