30.10.1934
Neðri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 650 í B-deild Alþingistíðinda. (769)
27. mál, sláturfjárafurðir
Bjarni Ásgeirsson:
Ég ætla ekki að þessu sinni að ræða mál það, sem fyrir liggur, því að það mun koma til n., sem ég á sæti i. En af því að hér hefir verið rætt um sögu mjólkurmálsins og afskipti mín af því, vildi ég skýra það mál með nokkrum orðum samkv. því, sem þingtíðindin herma.
Málinu var fyrst hreyft á búnaðarþingi árið 1932 fyrir mína forgöngu. Þar var samþ. frv. til 1., sem búnaðarþingið fól mér að koma á framfæri. Ég fékk landbn. Nd. til að flytja málið, og var ég frsm. þess. Frv. mætti lítilli mótstöðu í deildinni og fór til Ed. En þar strandaði málið vegna sameiginlegrar mótstöðu sjálfstæðismanna og jafnaðarmanna. Síðan var málið borið fram á næsta þingi í svipuðu formi, en þá var hv. þm. G.-K. aðalflm. þess. Málið var stöðvað aftur í Ed. vegna sameiginlegrar mótspyrnu sjálfstæðismanna og jafnaðarmanna, bæði hér í þinginu og utan þings. - Þetta vildi ég, að kæmi hér fram, úr því að saga málsins var gerð að umtalsefni.