05.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (813)
27. mál, sláturfjárafurðir
Bjarni Ásgeirsson:
Ég býst við því, að brtt., sem tveir hv. þm. bera fram á þskj. 335, ætti ekki að vera eins þægileg fyrir neinn þm. og mig. Þar er gert ráð fyrir, að fulltrúi frá Búnaðarfélagi Íslands og annar frá Kaupfélagi Borgfirðinga fái sæti í kjötverðlagsnefnd. En svo stendur á, að ég er í stj. Búnaðarfélagsins og Kaupfélag Borgfirðinga er verzlunarfyrirtæki í mínu kjördæmi. En í l. eins og þau eru nú á Kaupfélag Borgfirðinga að fá fulltrúa í n. ásamt Sláturfélagi Suðurlands, og geri ég engar frekari kröfur til íhlutunar fyrir það félag en þar er ákveðið. Og sem stjórnarmeðlimur í Búnaðarfél. Íslands segi ég það, að ég óska engra afskipta þess af þessu máli. Ég vil, að Búnaðarfélagið fái að vera í friði með þau mál, sem undir það heyra, en mun ekki nota aðstöðu mína til þess að hrifsa undir það vald, sem það fengi í óþökk helmings þingsins. Það væri enginn velgerningur, hvorki við Búnaðarfélag Íslands eða þetta mál. Velgengni þessa máls hvílir á tveim stoðum. Önnur er sú, að bændum sé gefin aðstaða til þess að hafa meirihlutavald í verðlagsn., og það má telja, að þeir hafi nú. Hin er velvilji neytendanna, sem ráðstafanir f. bitna á, að þeir eyðileggi ekki þessar framkvæmdir með kjötstræku, eða öðru slíku. Ef kippt er burt úr l. því ákvæði, sem gefur neytendum kost á því að stjórna þessum málum ásamt framleiðendum, er blátt áfram verið að egna þá til andstöðu gegn þessum ráðstöfunum. Ég mun því greiða atkv. á móti þessari brtt. Ég veit ekki betur en almenn ánægja ríki með þá verðlagsn., sem nú situr, og sæti því ekki á Alþ. að vera að samþ. vantraust á hana.