10.12.1935
Sameinað þing: 29. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í B-deild Alþingistíðinda. (305)
1. mál, fjárlög 1936
Sigurður Kristjánsson:
Það er aðeins örstutt aths. viðvíkjandi því, sem hv. 2. þm. Árn. sagði um Sölusamband ísl. fiskframleiðenda. Hv. þm. sagði, eins og ég bjóst við, fyrst hann svaraði þessu á annað borð, að starfsmenn S.Í.F. væru ekki starfsmenn ríkisins, og mundu ekki verða það á árinu 1936. Þá sagði hv. þm., við allar upplýsingar, sem fjvn. hefði beðið um, hefðu verið góðfúslega gefnar. Það mun rétt vera, en hitt datt engum í hug, þó fjvn. bæði um upplýsingar um launakjör starfsmanna, að hún færi að setja þá í opinbera skýrslu samhliða starfsmönnum ríkisins. Ég er einn í stjórn S.Í.F. og skal ekki fara dult með, að ég mótmælti, að nokkrar skýrslur væru af því heimtaðar, þar sem það er einkafyrirtæki, sem kemur Alþingi ekkert við. Þó var samþ. að lofa fjvn. að sjá þetta, ef hún hefði gaman af, en hv. 2. þm. Árn., sem hér á að standa fyrir svörum í hennar nafni, viðurkennir, að starfsmenn S.Í.F. séu ekki starfsmenn ríkisins. Ég sagði annað, sem ekki hefir heldur verið mótmælt, sem sé, að rangt væri að setja í slíka starfsskrá n., sem launaðar væru af atvinnuvegunum. þó er það nokkuð annað en um S. Í. F., vegna þess, að þar skipar þó stj. mennina í n., suma eftir bendingum ýmsra stofnana og suma eftir eigin vild. Svo ríkisvaldið skipar þó alla mennina, og ráðh. hefir úrskurð um launagreiðslur til þeirra, þó sá þvengur sé ristur af annara skinni, því upphaflega var samþ., að þeim n. væru greidd laun úr ríkissjóði, en þegar búið er að setja allar þessar n. á laggirnar, er það hrifsað til baka og atvinnuvegirnir prettaðir um þær greiðslur. Er þá samþ. að breyta því á þann veg, að launagreiðslurnar séu teknar af framleiðendunum sjálfum. En hvernig sem á þetta er lítið, horfir það alveg ólíkt við um einkafyrirtæki, sem ræður sjálft sína starfsmenn, eða um þá menn, sem skipaðir eru af ríkisstj. og laun þeirra úrskurðuð af henni.