18.12.1935
Neðri deild: 102. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í C-deild Alþingistíðinda. (4397)
203. mál, útsvar
Jón Pálmason:
Ég ætla ekki að fara að tala, á móti þessu máli, sem ekki hefir verið útbýtt fyrr en núna. En ég vildi aðeins segja það, að ég teldi ekki nema réttlátt, að það biði til næsta þings. Bæði er nú að því komið að þessu þingi verði slitið, og svo var hér á ferðinni á síðasta þingi frv., sem mig minnir, að gengi gegnum þessa d., en strandaði í Ed. á atriði, sem mjög var um deilt, sem sé rétti atvinnusveitar til þess að leggja útsvör á menn sem ekki eiga þar heima. Ég held þess vegna, að það væri full þörf á því að athuga þessi atriði í sambandi við breyt. á útsvarslögunum og því væri hentugt að geyma málið til næsta þings, þrátt fyrir það, að menn geti fallizt á, að þau ákvæði, sem frv. hefir að geyma, séu í sjálfu sér réttmæt, það sem þau ná.