13.03.1935
Neðri deild: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (880)
86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða
Sigurður Kristjánsson:
Ég mun greiða atkv. með máli þessu til 2. umr., þó það sé hinsvegar alvarlegt íhugunarefni sú stefna, sem stjórnarflokkarnir hafa nú tekið upp hér á Alþ. Og ég er andvígur því, að sífellt sé verið að búa til nefndir, sem eigi að sjá um sölu framleiðsluvaranna, og kostnaðinum hlaðið á atvinnuvegina, sem hér er verið að opna leið fyrir, að hlaða ómögum á framleiðsluna og láta hana borga pólitískum bitlingamönnum. Væri lítill vegur að setja lög um, að ríkissjóður greiddi fyrir framleiðendum um afurðasölu og lægri kostnað þann, sem af því leiðir en stjórn þessara mála væri í höndum framleiðenda sjálfra.