31.03.1936
Neðri deild: 38. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í C-deild Alþingistíðinda. (2559)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Ásgeir Ásgeirsson:

Ég á hér brtt. á þskj. 235 um eftirlit með utanferðum manna. Þar er ætlazt til, að þeir, sem fara til útlanda, geri gjaldeyrisnefnd grein fyrir, á hvern hátt þeir hafa aflað sér gjaldeyris, sem nauðsynlegur sé, og er óheimilt að selja mönnum farmiða nema þeir hafi yfirlýsingu um fararleyfi frá gjaldeyrisskrifstofunni. Það er leiðinlegt að setja slíkar reglur, en það er þó nauðsynlegt og í fullu samræmi við gildandi l. En með þessu einu móti getur eftirlitið orðið fullnægjandi.

Þá flytur n. brtt. á þskj. 262 við b-lið brtt. 235, og er till. eingöngu um það, hvernig farmskrár skuli gerðar og skýrslur um inn- og útfluttar vörur. Ég geri ekki ráð fyrir, að þessar till. verði til mikils ágreinings, þó þær séu ekki fluttar af meiri hl. n., því þær eru báðar nauðsynlegar, eins og nú er komið gjaldeyrismálunum.