04.04.1938
Neðri deild: 40. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (2518)

75. mál, rafveitur ríkisins

*Bjarni Bjarnason:

Ég skal ekki eyða löngum tíma í að tala um, hverjir hafi mesta þörf fyrir að fá rafmagn til sín. Ég býst við, að alstaðar, þar sem kostur er á að fá það, sé nauðsynin hin sama. En í 5. gr. frv. er gerð grein fyrir, á hverju framkvæmdir þessa máls skuli byggðar, þ. e., að þar skuli byrjað, sem bezt útlit er með fjárhagslega afkomu. Nú veit ég ekki, hvaða orkuveitur það verða, en eins og nú standa sakir, þá er erfitt um gjaldeyri, og því virðist mér eðlilegt, að þær veitur verði teknar fyrstar, sem minnst kosta, þ. e. a. s. þær, sem næstar eru, og vil ég vona, að útkoman verði sú, að byrjað verði á veitunni fyrir Eyrarbakka og Stokkseyri, eins og eðlilegt væri. Ég nefni þetta vegna þess, sem hv. þm. Borgf. sagði um Akranes, en það er harla lítill munur á fólksfjölda á Akranesi og Eyrarbakka og Stokkseyri til samans. Það er vitanlega mjög bagalegt, að ekki skuli nú þegar vera hægt að byggja orkuveitur fyrir Eyrabakka og Stokkseyri. Eftir þeim upplýsingum. sem ég hefi fengið, myndi þurfa að flytja inn efni til þeirrar stöðvar fyrir 140 þús. kr. fob., hinn kostnaðurinn er flutningsgjöld, tollur og vinna.

Viðvíkjandi brtt. þeirri, sem hv. þm. Borgf. og hv. 7. landsk. hafa borið fram, þá sé ég ekki ástæðu til að fara að festa það í l., að vegamálastjóri skuli vera vatnamálaráðunautur ríkisstj. Hann er það nú, og ég veit ekki til, að nein ósk hafi komið fram um breytingu á því, en till. mun hafa verið fram borin í því augnamiði að verða til sparnaðar. Til þess að hún nái þeim tilgangi sínum, finnst mér vanta dálítið í hana, sem sé það, að eftir „vegamálaskrifstofan“ komi: án sérstaks endurgjalds, — og mundi þá till. hljóða svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Vegamálastjóri er fyrst um sinn vatnamálaráðunautur ríkisstjórnarinnar, og skulu mælingur þessar, kostnaðaráætlanir og annar undirbúningur framkvæmdur af honum og fastlaunuðum verkfræðingum vegamálaskrifstofunnar án sérstaks endurgjalds, eftir því sem þeim vinnst tími til frá öðrum störfum“.

Ég mun því leggja fram þessa skrifl. brtt.