02.03.1939
Efri deild: 9. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)

22. mál, tollskrá

*Frsm. (Magnús Jónsson) :

Sannleikurinn í þessu máli er sá, að útreikningur á því, hvað tollskráin muni gefa miklar tolltekjur, er mjög margbrotinn og erfiður. En frá mínu sjónarmiði a. m. k. var tilgangur þessarar löggjafar sá, sem hv. 1. landsk. þm. taldi, að vera ætti, sem sé sá, að samræma tollalöggjöfina, en ekki hækka tollana. Annað mál er það, hvernig þetta hefir tekizt. Ég taldi rétt að haga áætluninni þannig, að um það mætti segja eins og Englendingurinn: „You are on the safe side“, þannig að tryggt væri, að ekki yrði halli á. Eins og sjá má af nál. bls. 13 og fylgiskjölum, eru útreikningar n. við það miðaðir, að út fáist sama tollaupphæð og verið hefir. Einn nm. gerði að vísu nokkurn ágreining, og býst ég við, að hv. 1. landsk. hafi átt við það, er hann var að tala um 700 þús. kr. hækkun á tolltekjunum. Ég skal játa, að það er nokkuð veikur grundvöllur, sem n. hefir byggt á, en ef tekin er áætlun fjárl. fyrir 1939 og þar við bætt þeirri upphæð, sem meðaltal undanfarinna ára sýnir, að tolltekjur hafa farið fram úr áætlun, þá kemur fram upphæð sú, sem tollskráin gefur. Getur verið mikill vandi að ákveða þetta rétt, og vildi ég óska, að þetta væri varlega reiknað hjá n. Væri það þá ekki verra fyrir þingið, ef það hefði möguleika til að slaka á sumstaðar.

En ég hefi litið á þetta starf á sama hátt og hv. 1. landsk., að það ætti að gefa út tollskrá, sem væri ekki annað en samræming á þeim ákvæðum, sem nú gilda.