20.02.1939
Neðri deild: 4. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (64)

8. mál, námulög

Atvmrh. (Skúli Guðmundsson):

Ég get upplýst, að það liggur ekki fyrir nein skýrsla um þetta, en ég vil benda hv. 3. þm. Reykv. á það, að það er vitanlega hægt, ef þess er óskað, að taka það atriði málsins til meðferðar við síðari umr. þessa máls. Sé ég því ekki ástæðu til að fresta því að vísa málinu til 2. umr. og nefndar, þó að engin skýrsla um þetta atriði sé gefin nú.