11.04.1940
Efri deild: 32. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í C-deild Alþingistíðinda. (2363)
52. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla af stríðsáhættuþóknun
*Fjmrh. (Jakob Möller):
Ég tók eftir því, að hv. þm. Vestm. vitnaði í það, að nágrannaþjóðir okkar hefðu farið lengra í því efni að undanþiggja stríðsáhættuþóknun skatti heldur en við. Ég hélt, að þetta hefði þegar verið upplýst við umr., en það er kunnugt, að Danir einir undanskilja þetta skatti, en Norðmenn eða Svíar ekki að neinu leyti. Ég gerði fyrirspurn um þetta til sendiherra okkar í Kaupmannahöfn og fékk tvö svarskeyti. Ég fékk formanni n., sem hefir þetta mál til meðferðar, fyrra skeytið, þar sem tekið er fram um Dani, en síðara skeytinu sagði ég honum frá. Ég hefi það hér meðferðis núna og get afhent nm. það, svo þeir geti sannfært sig um, að þetta er rétt. Hinsvegar hefir það komið til tals í Noregi að undanskilja áhættuþóknun skatti, en það eru ekki taldar miklar líkur til þess, að það verði gert.
Ég skal svo að öðru leyti láta þetta afskiptalaust.