29.03.1940
Efri deild: 24. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (314)

84. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Ég þarf í raun og veru ekkert að segja um þessar till. Ég tel, að þar sem n. leggur til, að 2 liðir hækki um 2 þús. kr. hvor, sé ekki um svo stórvægilega upphæð að ræða, að það geti valdið ágreiningi. Prentvillur er auðvitað sjálfsagt að leiðrétta.

Viðvíkjandi 20. liðnum, þá á hann ekki að standa eins og hann er, en hvort ástæða er til að setja ákvæði viðvíkjandi þessu máli fyrir næsta ár, hefi ég satt að segja ekki hugsað út í. Það er rétt, að n. athugi þetta fyrir næstu umr.