11.06.1941
Neðri deild: 76. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)
167. mál, ríkisstjóri Íslands
Sigurður E. Hlíðar:
Hæstv. forsrh. 1ét svo um mælt, að hann teldi það vilja Alþ., að Bessastaðir yrðu keyptir, hvað sem líður 10. gr. En til hvers er þá orðalag 10. gr. með því sniði, sem er? Ég vil því gera grein fyrir minni afstöðu til þessa máls, þó að ég í fjvn. hafi verið með því að samþ. heimild til ríkisstj. til að kaupa bústað handa væntanlegum ríkisstjóra. Ég hélt ekki, að það ætti endilega að vera þessi ákveðni staður, Bessastaðir. En nú veit ég, að tilgangurinn er að velja þann stað, ef meiri hl. fæst með 10. gr. Ég lýsi því yfir, að ég felli mig ekki við það. Bessastaðir eru ekki vel valinn staður nú, þegar verið er að rekja þetta þjóðmetnaðarmál okkar. Það er leiðinlegt að rígskorða þessa embættisstofnun við þennan stað, þó að margt sé gott um hann að segja að öðru leyti. Ég er fæddur þar í nágrenninu og veit, að þar er fallegt. En svo er um velflesta staði á Íslandi.
Ég veit ekki, í hvaða ástandi húsið er þar, en veit, að þar muni þurfa að gera miklar umbætur. Þó að Bessastaðir fáist fyrir sæmilegt verð, mun kostnaðurinn ekki verða minni, heldur meiri en ef keypt er hús í Reykjavik. Þá hefur það ekki komið fram í umr., að vitanlega þyrfti að leggja þangað góðan veg, flestir munu aka þangað í lúxusbílum, en til slíkra hluta er ekki vel fallinn sá vegur, sem nú er.
Margir héldu, að það væri ákveðið að reyna að ná í Fríkirkjuveg 11. Það kom beinlínis fram í fjvn., og hún ritaði bréf til fjmrh. um að leita hófanna um kaup á því húsi. Nú upplýsir hæstv. fjmrh., að húsið sé ekki fáanlegt og sé upptekið af öðrum aðilum. Það eru ekki nóg rök til að staðnum sé sleppt. Sakadómaraskrifstofunum má koma burt. Það stendur m. a. s. hús til boða fyrir skikkanlegt verð, 140 þús. kr., sem væri tilvalið handa þeim. (Fjmrh.: Hvaða hús?) Lækjargata 12. (Einhver: Þar er ekki nóg pláss.) Jú, þar alveg nóg pláss. Húsið er gríðar stórt, og öll efri hæðin yrði laus strax. Ég sé ekki ástæðu til, að sakadómaraskrifstofurnar þurfi að þenja sig út í einhverju gegndarleysi.
Ég vil, að tilvonandi ríkisstjóri — ég tala nú ekki um forseta — fái bústað í höfuðstaðnum. Líka mætti reisa veglega höll handa honum. Ég hef því ásamt hv. 5. þm. Reykv. með brtt. við 10. gr. viljað fella niður orðalagið „og næsta nágrenni“, til þess að úr því verði skorið, að ekki séu allir á því einu máli, að sjálfsagt sé að kaupa Bessastaði.