13.06.1941
Neðri deild: 78. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1038 í B-deild Alþingistíðinda. (2628)
157. mál, stríðstryggingafélag skipshafna
Frsm. (Sigurður E. Hlíðar):
Þess ber að gæta, að hér er átt við stríðstryggingafélag, þ. e. tryggingar gegn slysum af völdum stríðs. Þess vegna er þetta undantekningarákvæði sett, ef sannast, að slys hefur orsakazt ekki einungis af stríðsástæðum. En aðrar tryggingar eru fyrir á sjómönnum, ef þeir farast, en ekki af stríðsvöldum. Og inn í 1. um þær tryggingar mætti koma ákvæði, sem ekki kemur þó þessu máli, sem hér er til umr., beint við, ef þurfa þætti um það, sem hv. 4. landsk. kom inn á.