16.06.1941
Sameinað þing: 28. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í D-deild Alþingistíðinda. (3659)

138. mál, kaup á hlutabréfum í Útvegsbanka Íslands h/f

*Frsm. meiri hl. (Sigurður E. Hlíðar) :

Herra forseti! Þessari þáltill., sem hér er um að ræða, var vísað til fjvn. N. tók málið til meðferðar á næsta fundi sínum, og var samþ. að leita álits bankaráðs og bankastjórnar. Svar barst svo til n. og var tekið til athugunar. Vildi ég lesa það upp, með leyfi hæstv. forseta :

„Stjórn Útvegsbanka Íslands h/f telur rétt, að athugað verði, á hvern hátt ríkið gæti leyst inn til sín öll hlutabréf bankans, sem ekki eru ríkiseign, og mælir því með, að samþ. verði á Alþingi ályktun, er heimili þessar framkvæmdir.“

Þetta mál var svo enn tekið fyrir á tveim fundum fjvn., en n. gat ekki orðið á eitt sátt. um afgreiðslu málsins. Minni hl. (BjB, PHerm, HelgJ og ÞÞ) lagði til að afgr. málið með dagskrá, sem ég geri ráð fyrir, að þeir geri grein fyrir. En meiri hl. n. (EmJ, JJ, PO, SEH og SK) leit hins vegar svo á, að það væri ástæða til, að Alþ. sinnti þessu máli, — og sérstaklega með tilliti til þess, að þeir menn, sem hafa orðið harðast úti í þessum viðskiptum, sýndu mestan þegnskap í að leggja fram sínar sparisjóðsinnistæður í þessu skyni. Þess vegna leggur meiri hl. áherzlu á, að Alþ. — að svo miklu leyti sem fært þykir — beini áskorun til ríkisstj. um að taka þetta mál til viðeigandi meðferðar. Meiri hl. ætlast að sjálfsögðu til, að ríkisstj. gæti allrar varfærni í meðferð þessa máls og mati á verðgildi hlutabréfa. Að öðru leyti leggur fjvn. til, að till. verði samþ. með breyt., sem þannig er orðuð, með leyfi hæstv. forseta:

„Tillgr. skal orða svo :

Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að kaupa fyrir hönd ríkissjóðs af hinum upprunalegu eigendum eða erfingjum þeirra, ef þess er óskað, hlutabréf þau í Útvegsbanka Íslands, er keypt voru með hluta af sparisjóðs- og innlánsskírteinainnistæðum í Íslandsbanka, þegar hann hætti störfum, við því verði, er stjórnin telur hæfilegt, að athuguðum öllum málavöxtum um verðmæti bréfanna.“

Undir þetta eru svo rituð nöfn þessara þm., sem ég gat um áðan. Eins og hv. Alþ. heyrir á þessu, er orðalagið varfærnislegt, — því er beint til ríkisstj. að rannsaka þetta mál og sinna því að svo miklu leyti, sem hún telur fært.

Ég vil geta þess, að eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið frá stj. Útvegsbankans, er það fé, sem hér er um að ræða á bókum og skírteinum, 1344450 kr. Auk þess eru á hlaupareikningi kr. 470950. Þetta er öll upphæðin í raun og veru. Hins vegar hefur því verið skotið fram, að menn mundu vilja blanda inn öðrum upphæðum, sem ekki geta komið til mála, eins og eftirstöðvum af póstsjóðsskuldinni gömlu, sem upphaflega var á 5. milljón, en nú 2250000 kr. En þar er allt öðru máli að gegna, þar sem um samningsbundið lán er að ræða, sem er borgað árlega af eftir gildandi samningi. Ennfremur er hlutafé Útvegsbankans, sérstaklega Hambro's banka, hálf milljón, og Handelsbankens í Kaupmannahöfn önnur hálf milljón. Loks er það, sem ríkissj. sjálfur á, 4½ milljón. Hér er því ekki um aðra upphæð að ræða en þessa 1 millj. og 344 þús. kr. Hér er ekki farið fram á að rétta hlut útlends banka, þó að það sé álitamál, hvort ekki borgar sig að kaupa hlutabréf fyrir eitthvað af þeim innifrosnu sterlingspundum, sem við eigum í Englandi nú. Ég álít, að þetta nægi til þess að lýsa afstöðu meiri hl. fjvn. og læt því staðar numið, nema tilefni gefist til frekari umræðna.