09.07.1941
Sameinað þing: 1. fundur, 57. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

Kosning fastanefnda

forseti (HG):

Þá er störfum þingsetningarfundar lokið. Nú setjast þingdeildir niður samkv. 7. gr. þingskapa. Þar sem meðferð máls þess, sem þingið hefur verið kvatt saman til þess að fjalla um, fer fram í sameinuðu þingi og ekki er vitað um nein mál, er koma til meðferðar í deildum, en efrideildarsalurinn var hins vegar að loknu síðasta þingi tekinn til afnota handa ríkisstjóra Íslands, þótti mega hlíta því um sinn, að báðar fundahalda, og er ætlazt til þess, að neðri deild eigi fund að þessum fundi loknum og síðan efri deild.

Næsti fundur í sameinuðu þingi verður háður að loknum fundi efri deildar, og verður tekin á dagskrá:

Till. tillþál. um, að Bandaríkjum Norður-Ameríku fé falin hervernd Íslands, meðan núverandi styrjöld stendur. (Þskj. l.) — Hvernig ræða skuli. (Ef leyft verður.]

Að loknum fyrsta fundi í sameinuðu þingi var fundur haldinn í neðri deild. Deildina skipuðu þessir þingmenn:

1. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.- Ísf.

2. Bergur Jónsson, þm. Barð.

3. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

4. Bjarni Bjarnason, 2. þm. Árn.

5. Eiríkur Einarsson, 8. landsk. þm.

6. Emil Jónsson, 6. landsk. þm.

7. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S.- M.

8. Finnur Jónsson, þm. Ísaf:

9. Garðar Þorsteinsson, 7. landsk. þm.

10. Gísli Guðmundsson, þm. N.- Þ.

11. Gísli Sveinsson, þm. V.- Sk.

12. Haraldur Guðmundsson, þm. Seyðf.

13. Helgi Jónasson, 2. þm. Rang.

14. Héðinn Valdimarsson, 3. þm. Reykv.

15. Ísleifur Högnason, 4. landsk. þm.

16. Jakob Möller, 2. þm. Reykv.

17. Jóhann G. Möller, 6. þm. Reykv.

18. Jóhannes Jónasson, 4. (vara)þm. Reykv.

19. Jón Ívarsson, þm. A.- Sk.

20. Jón Pálmason, þm. A.-Húnv.

21. Jörundur Brynjólfsson, .1. þm. Árn.

22. Ólafur Thors, þm. G.-K.

23. Pálmi Hannesson, 1. þm. Skagf.

24. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

25. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.

26. Sigurður Kristjánsson, 5. þm. Reykv.

27. Skúli Guðmundsson, þm. V.- Húnv.

28. Stefán Stefánsson, 3. landsk. þm.

29. Steingrímur Steinþórsson, 2. þm. Skagf. 30. Sveinbjörn Högnason, 1. þm. Rang.

31. Thor Thors, þm. Snæf.

32. Þorsteinn Briem, þm. Dal.

Voru deildarmenn allir á fundi nema þm. N.Þ. og þm. Snæf., sem báðir voru ókomnir til þings. — Óskipað var sæti þm. N.- Ísf.

Fjármálaráðherra, Jakob Möller, aldursforseti deildarinnar, setti fundinn. Kvaddi hann sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Emil Jónsson, 6. landsk. þm., og Eirík Einarsson, 8. landsk. þm.