17.11.1941
Neðri deild: 21. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (123)
4. mál, húsaleiga
Frsm. (Jóhann G. Möller) :
Ég ætla aðeins að segja fáein orð fyrir hönd allshn. Við 2. umr. bað ég um það sem frsm., að till. á þskj. 43 yrði frestað, til þess að n. gæti athugað hana fyrir 3. umr. Það vildi nú svo til, að n. gat ekki tekið till. fyrir á reglulegum fundi, en nm. hafa þó rætt hana sín á milli, og ég tel víst, að n. muni halda sér við álit sitt á þskj. 37, þó að einstakir nm. áskilji sér rétt til að fylgja eða hafna einstökum brtt. eftir atvikum. Þó að þessi brtt. kunni að vera til bóta í sjálfu sér, mun hún engu breyta í reynd fyrr en um næsta flutningsdag, en þá er hægurinn hjá að breyta l., svo að ekki ætti að gera neitt til, þó að till. næði nú fram að ganga, og mun ég ekki leggjast á móti því, þar sem mér er áhugamál að flýta málinu.