28.10.1941
Neðri deild: 7. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (352)
7. mál, ráðstafanir gegn dýrtíðinni
Skúli Guðmundsson:
Ég skal byrja á því að hrekja það, sem hv. þm. Seyðf. sagði. Í þeim ræðukafla, sem hann las upp, eru engin loforð gefin, sem ekki hafa verið efnd. Sami hv. þm. segist ekki hafa orðið var við skýrslur yfir afkomu landbúnaðarins. Hefur hv. þm. aldrei heyrt getið um búreikningaskrifstofu ríkisins, og aldrei litið í skýrslur hennar? Þar er hægt að fá upplýsingar um þetta, sem hann minntist á. En nú vil ég spyrja hv. þm. að því, hvar til séu skýrslur um tekjur verkamanna. Ég hef alls ekki orðið var við þær. Svo vil ég að endingu segja það, að ekki er meiri árás á verkamenn að binda kaupið með 1. heldur en á bændur að hinda afurðaverðið.