02.05.1942
Neðri deild: 46. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í B-deild Alþingistíðinda. (1648)
81. mál, eignarnám hluta af Vatnsenda
*Sigurður Kristjánsson:
Ég vildi aðeins gera leiðréttingu á því, sem hv. þm. V.- Húnv. kallaði brot á skipulagsskrá. Það, sem hér er um að ræða, er að heimila núverandi eiganda að selja þetta land. Það er auðvitað ekkert brot á erfðaskránni, þó að seldur sé lítill hluti af þessu landi til almenningsþarfa, né heldur brot á eignarrétti. Mig undrar, hvað hv. þm. er viðkvæmur í þessum málum. Ég hef ekki orðið var við þessa viðkvæmni hjá honum og hans samherjum, þegar þeir eru að koma einstaklingseignum í vörslu þess opinbera. Ég efast um, að það sé fullkomin ósk bænda að afhenda jarðir sínar til þess opinbera, þegar ríkið er búið að sölsa þær undir sig og upphefja þannig sjálfseignarbúskap í landinu. Þessi mótþrói mundi þó ekki stafa af því, að Reykjavík á hér hlut að máli. Ef Reykjavíkurbær hefur einhverjar óskir fram að færa, jafnvel þó að þær séu til almenningsheilla, eru sumir hv. þm. alltaf að þessu eilífa naggi og sjá ofsjónum yfir öllu, bænum í hag.