15.04.1942
Neðri deild: 35. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í B-deild Alþingistíðinda. (1686)
84. mál, jarðræktarlög
*Jón Pálmason:
Í tilefni af fyrirspurn hv. þm. V.-Sk. skal ég geta þess, sem að nokkru leyti koni fram í yfirlýsingu hv. frsm., að það er ákveðið, að ég og hv. þm. Borgf. berum fram brtt. um að fella 17. gr. niður. Það hefur ekki að öllu leyti náðst samkomulag um eitthvað, sem í staðinn skyldi koma. Eins og hv. frsm. gat um, þá er þetta ágreiningsatriði innan landbn. eins og að undanförnu. Það leit að vísu út fyrir á síðasta aðalþingi, að ef til vill gæti náðst samkomulag um þetta ágreiningsmál, en það varð ekki, og ekkert vitað um, hvort um það verður að ræða. Það var einnig ágreiningur um önnur atriði jarðræktarl., og er n. búin að ganga frá því þannig, að fullt samkomulag náðist um þau atriði, svo sem hámarksákvæði styrks og ýmislegt fleira, og var þar gerð nokkur breyt. frá því, sem búnaðarþing hafði gengið frá l.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu á þessu stigi til að ræða þetta nánar. Ágreiningurinn um þetta atriði, sem hv. síðasti ræðumaður var að spyrjast fyrir um, kemur til athugunar fyrir 2. umr. í deildinni.