20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (678)
137. mál, hreppamörk Borgar- og Stafholtstungnahreppa o.fl.
Jón Pálmason:
Í upphafi þessa fundar var tilkynnt, að fyrir lægju mótmæli úr Stafholtstungnahreppi, og þegar svo stendur á og engar upplýsingar liggja fyrir um, að brýn nauðsyn sé á að breyta hreppamörkunum, þá er það ósk mín, að hv. allshn. skýri ástæðurnar fyrir því, að hún gerir þessa samþykkt.