14.08.1942
Efri deild: 8. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (612)
46. mál, bifreiðalög
Fjmrh. (Jakob Möller) :
Fyrir síðasta þingi lá frv. um breyt. á bifreiðal., sama efnis og það, sem hér er borið fram, að færa aldursmark bifreiðarstjóra, þeirra sem atvinnu stunda með minna prófinu, úr 18 árum í 17. ár. Málið heltist úr lest og varð þess vegna óútrætt sakir tímaskorts, en ekki af því, að það mætti eiginlegri mótstöðu. Frv. kom fram af því, að mjög var sótt á um þessa breyting. Bifreiðum hefur fjölgað mjög undanfarin ár, og af því er sprottin þessi krafa um breytinguna. Í rauninni er ómögulegt að gera upp á milli þess, hvort maður þurfi frekar að vera 18 eða 11 ára, þegar hann fer að stunda þessa atvinnu. Ríkisstj. þótti eftir þessum málavöxtum rétt að setja um þetta brbl., og vil ég mæla með því við hv. þd., að frv. verði samþ. Óska ég, að því verði vísað til n. að lokinni umr.