20.08.1942
Sameinað þing: 6. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í D-deild Alþingistíðinda. (862)

2. mál, söluverð á síldarmjöli til fóðurbætis

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Það er rétt hjá hv. þm. Ísaf., að fjvn. tók ekki brtt. hans fyrir á fundi. En eftir því sem mér skildist, þá held ég, að n. telji þó rétt að halda sér við upprunalegu till., en ekki brtt. hv. þm. Ég hef borið þetta atriði undir hvern einstakan nm. eins og mér var skylt, áður en ég lýsti yfir nokkru um skoðun þeirra. Þetta vildi ég leiðrétta, og vona ég, að því verði ekki andmælt. Einnig vænti ég þess, að ekki verði meira vafstur um þetta mál. Þá vildi ég og ítreka það, sem komið hefur fram, að stj. geri bændum svo hægt fyrir um flutningana sem ástæður frekast leyfa.