22.11.1943
Neðri deild: 51. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (1495)

105. mál, vinnuhæli berklasjúklinga

Finnur Jónsson:

Ég vil taka undir það með hv. þm. Vestm. (JJós), að mér þykir fjhn. ekki hafa tekið á þessu máli eins og skyldi, þar sem hún gerir ráð fyrir því að vísa því frá, þar eð annað frv. sama eða svipaðs efnis liggi fyrir efri deild, en þó ýtarlegra, og leggur því til, að mál þetta verði leyst í sambandi við það og þetta frv. fellt. Það hefur óefað vakað fyrir flm. þessa frv. að flýta fyrir því, að þetta vinnuhæli yrði reist, og hefur frsm. málsins og aðalflm. fært fyrir því mörg rík rök, svo að ekki er nein þörf að bæta þar við. Annað er það, að við 1. umr. málsins bar ég fram brtt., þar sem svo er ákveðið, að þegar Samband ísl. berklasjúklinga reisir vinnuhæli fyrir berklaveikt fólk, skal ríkissjóður greiða 2/3 stofnkostnaðar, enda samþ. heilbrigðisstjórnin uppdrætti hælisins og fyrirkomulag. Nú hef ég ekki orðið var við, að fjhn. hafi tekið þessa brtt. til athugunar, a. m. k. hefur ekkert komið fram um það í nál., og þykir mér það miklu miður, þar sem ég held, að mikil þörf sé á því, að vinnuhælið verði reist sem fyrst, en þó þannig, að þetta valdi ekki neinum ruglingi á skattalöggjöfinni. Ef nú þessi brtt. yrði samþykkt og jafnhliða afgreitt það frv., sem liggur fyrir í hv. Ed., virðist alveg auðsætt, að það mundi hraða þessu máli og Samband ísl. berklasjúklinga mundi geta ráðizt í þessa byggingu innan mjög skamms tíma. Ástæðan til þess, að ég hef viljað lögfesta, að ríkissjóður legði fram 2/3 kostnaðar, er sú, að gert er ráð fyrir, að helmingur sjúklinganna, sem á vinnuhælinu verða, verði á berklal., og mundi þá ríkissjóði bera að greiða 50% kostnaðar, hvort sem er. Upphæðin, sem sambandið er búið að safna, er um 280 þús. kr., og ef samþ. er, að ríkissjóður leggi fram 2/3, mundi sambandið hafa nú um 840 þús. kr., og ef gengið er að söfnuninni með sama dugnaði og verið hefur af þessu sambandi, mundi þetta flýta fyrir, að hælið yrði reist. Skilst mér, að ef þessi brtt. mín verður samþ., verði náð tilganginum með frv. á þskj. 183 og vel séð fyrir málinu.