18.10.1943
Neðri deild: 33. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (1730)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Finnur Jónsson:

Hæstv. ráðh. telur sér ekki fært að gefa þessar upplýsingar nema áskorun frá Alþingi um það komi til. Nú er það svo með þessar uppbætur, að það mun hafa verið ætlun þingsins, að þær ættu að fara til þeirra, sem framleiddu vöruna, en ekki endanlega til þeirra, sem flyttu hana út. Mér skilst, að ekki sé trygging fyrir, að þessar uppbætur komi til réttra aðila, nema því aðeins, að þeir, sem fá uppbæturnar greiddar í stórum slumpum, skili sundurliðuðum kvittunum fyrir greiðslunum. Það má auðvitað segja, að það sé verk hvers manns, sem selur þessar afurðir, að ganga eftir því að fá uppbæturnar, en það er vissulega engin trygging fyrir, að þeir réttu aðilar fái þær, nema kvittanir liggi fyrir. Nú hef ég ekki ætlazt til, að ríkisstj. fari að greiða hverjum manni þessar uppbætur úr ríkissjóði, en til þess má ætlast, að þeir, sem fá þessar uppbætur til útborgunar, geri ríkisstj. grein fyrir, hverjir endanlega fái þessar greiðslur.