22.10.1943
Neðri deild: 36. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í D-deild Alþingistíðinda. (2734)

106. mál, rannsókn á olíufélögin og um olíuverzlunina

Flm. (Finnur Jónsson) :

Ég er hæstv. ráðh. þakklátur fyrir þær viðbótarupplýsingar, sem hann hefur gefið í þessu máli, og vil um leið taka það fram, að ég skoða ekki þær upplýsingar, að verðlagsn. sé að athuga málið, sem mótmæli gegn till., sem hér liggur fyrir. Ég tel, að hún mundi flýta fyrir því, að verðlagsn. athugaði málið, og eins hitt, að stj. hafi betri aðstöðu við nauðsynlega, opinbera rannsókn en þá, sem verðlagseftirlitið getur látið framkvæma, þannig að stj. ætti frekar að telja sér styrk í því að fá samþ. þá till., sem hér liggur fyrir. Sama gildir um þann undirbúning, sem stj. er byrjuð á, að samþykkt till. mundi styrkja hana til þess, sem hún er að gera, og mundi sýna, að stj. hefur fullan vilja Alþ. á bak við sig í þessu einu mesta hagsmunamáli sjávarútvegsins.

Um leið tel ég rétt að skjóta því til stj., hvort hún gæti ekki flýtt fyrir því, að söluleyfi útvegsmanna á Norðfirði fengist sem fyrst.