16.12.1943
Sameinað þing: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í D-deild Alþingistíðinda. (3362)
191. mál, lækka verð á vörum innan lands
Finnur Jónsson:
Ég mun ekki fara að ræða þetta við hv. 2. þm. Reykv., en ég vil aðeins benda á, að hann rangfærði orð mín, er hann sagði, að ég teldi, að hér í landinu væri að rísa upp nazistastj. Ég tók það skýrt fram og vitnaði til þm., að ég teldi ekki líkur til, að þessi hv. ríkisstj. gripi til þeirra aðgerða, sem réttlættu það, að hún kallaðist fasistastj. Hitt benti ég á, að sú stj., sem hv. þm. stakk upp á í átta manna n., hefur snúizt á þann veg, að engar aðgerðir hafa komið fram í dýrtíðarmálunum, og jafnframt benti ég á hliðstæðu við þetta frá öðru landi, en hv. 2. þm. Reykv. gerði enga tilraun til að hrekja hana. Ég vildi svo óska þess, að þessi ágæti flokkur hv. þm. reyndi að læra meira af því, sem er að gerast, og leitaðist við að haga sér eftir því. En um till. sjálfa óska ég þess, að henni verði vísað til fjvn.