11.01.1945
Neðri deild: 102. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1427 í B-deild Alþingistíðinda. (3895)

235. mál, skipakaup ríkisins

Atvmrh. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. — Frv. sjálft er almennt orðað þannig, að ekki sé bundið nema við Svíþjóðarbátana, efnislega og vegna þess að takmarkanir þess eru lánsheimildin. Ef það hins vegar sýnir sig, að ekki þurfi á þessari lánsheimild að halda til Svíþjóðarbátanna, þá er þar samkvæmt efni og orðalagi frv. opinn möguleiki á því að hagnýta þessa heimild, þar sem l. binda hana ekki algerlega við Svíþjóðarbátana, þó að heimildin geri það út af fyrir sig.