22.02.1945
Neðri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1503 í B-deild Alþingistíðinda. (4148)

24. mál, atvinna við siglingar

Atvmrh. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. — Það hefur verið mikið rætt um þetta mál. Ég ætla ekki að fara ýtarlega út í þær umr. En ég sé, að á þskj. 1147 er komin fram brtt. frá sömu hv. þm. og brtt. á þskj. 1012. Og ég sé, að þeir hafa nú fallizt á töluverðan hluta af þeim rökum, sem fram hafa verið færð af minni hálfu og annarra hv. þm., sem hafa mælt með því, að 3. málsgr. í bráðabirgðaákvæðinu í frv., eins og það er nú, yrði látin standa.

Út af fyrir sig hef ég aldrei gert það að skilyrði, hvernig þetta yrði nákvæmlega orðað. Þó mundi ég óska heldur og teldi það betra að hafa ákvæðið í því formi, sem það er í bráðabirgðaákvæðinu, heldur en samkvæmt brtt. á þskj. 1147, þó að sú brtt. sé ákaflega miklu betri en að ákvæðið sé alveg fellt niður, eins og sömu hv. þm. hafa áður lagt til.

Ég býst við, að brtt. á þskj. 1012 verði dregin til baka, a.m.k. mun hv. þm. verða gefinn kostur á því að kjósa það af þessum ákvæðum, sem þeim þykir betra, — þannig að hún yrði borin upp til atkv. fyrst, og þá, eftir að hún er felld, — ef hún verður felld. — megi þm. kjósa um það, hvort þeir vilji heldur ákvæðið eins og það er í frv. nú eða eins og það á að vera samkv. brtt. á þskj. 1147.