19.01.1945
Neðri deild: 109. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (905)

187. mál, landssmiðja

Atvmrh. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. — Sú breyt., sem gerð hefur verið á þessu frv. í hv. Ed., að bætt hefur verið við það nýrri gr., er breyt. á 2. málsgr. 7. gr. l. um landssmiðju frá 1936. Þessi breyt. er sett inn í samráði við mig og byggist á því, að í þessari 2. málsgr. 7. gr. landssmiðjul. eru ákvæði um tekjuskattsgreiðslu landssmiðjunnar, þar sem ákveðið er, að hún greiði tekjuskatt sem einstaklingur. Nú hefur verið ágreiningur um það, síðan hlutafélögum hafa verið veitt þau hlunnindi að mega draga frá skattskyldum tekjum 20%, ef það fé væri lagt í varasjóð, hvort landssmiðjan njóti þessa réttar. Og úrskurðað var, að svo gæti ekki talizt, vegna þess að einstaklingum væri ekki heimilað slíkt. Hins vegar er óeðlilegt, að landssmiðjan hafi ekki sömu réttindi og aðstöðu að því er skattgreiðslu snertir og aðrar smiðjur, sem reknar munu vera sem hlutafélög. Og það þótti rétt að fá úr þessu skorið, og m.a. til þess að geta gert upp allmikla skattskuld, sem landssmiðjan er komin í við ríkissjóð.

Með þessari breyt á frv. er aðeins slegið föstu, að landssmiðjan skuli greiða skatt eftir reglum um hlutafélög og þar með njóta hlunninda, sem hlutafélög hafa í skattal.