25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (316)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. — Ég hef frá því að styrjöldinni lauk staðið fast gegn því, að nokkru herveldi yrðu til lengri eða skemmri tíma leigðar hér á landi herstöðvar. Enn fremur hef ég talið sjálfsagt, að gerðar yrðu kröfur um það, að hið ameríska herlið, sem hér dvaldi styrjaldarárin, færi héðan í brott.

Ég get því ekki fallizt á það, að það sé heppilegt að blanda saman slíkum kröfum inn í afgreiðslu þess máls, sem hér liggur fyrir til afgreiðslu, ég tel það þvert á móti óhyggilegt og óþinglegt.

Í trausti þess, að hæstv. ríkisstj. haldi þessum kröfum hins vegar fram í samræmi við yfirlýsingu hæstv. forsrh., greiði ég atkv. gegn þessari till. og segi nei.