28.11.1946
Neðri deild: 27. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)
89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Skúli Guðmundsson:
Ég vil aðeins láta þess getið út af ummælum hv. 2. þm. Reykv., að ég er honum sammála um það, að þörf sé að gera hið fyrsta breyt. á þessum l. um innflutning og gjaldeyrismeðferð og á framkvæmd þeirra mála, því að það er rétt hjá honum, að það er mikil óánægja með framkvæmd þeirra mála, eins og hún hefur verið hjá, þeirri ríkisstj., sem hann m. a. hefur stutt undanfarið. Hins vegar er það svo, að ég tel, að ekki sé hægt nú fyrir 1. des. að koma fram nauðsynlegum breyt. á l., og þess vegna hef ég gengið inn á það með öðrum nm. í fjhn., að l. verði framlengd um sinn, og get ég fyrir mitt leyti gengið inn á 1. febr., eins og um hefur verið talað. Eins vegar mun ekki standa á mér eða mínum flokki að leggja fram nú mjög fljótlega ákveðnar till. um breyt. á þessum 1., og ef hægt væri að fá fram breyt. á þeim og lagfæringu nú fyrir jól, mundi ég telja það gott, og gætu þá þær breyt. gengið í gildi fyrr en 1. febr., eins og hv. þm. V-Ísf. benti á, þó að sá frestur verði veittur í bili.