14.02.1947
Neðri deild: 74. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1629 í B-deild Alþingistíðinda. (2721)

109. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Mál þetta hefur verið til athugunar hjá fjhn. hv. þd., og ég geri frekar ráð fyrir, að nál. komi um málið frá þeirri n. eða einhverjum hluta hennar, og ætti það að geta legið fyrir strax eftir helgina. Vildi ég því mælast til þess við hæstv. forseta, að hann frestaði umr. málsins nú og tæki málið af dagskrá þessa fundar.