22.04.1947
Neðri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1661 í B-deild Alþingistíðinda. (2772)
197. mál, síldarniðursuðuverksmiðja ríkisins
Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson) :
Hv. þm. Siglf. hefur enn ekki skilað minnihl. áliti, enda þótt nú séu tólf dagar liðnir, síðan álit meiri hl. kom út, og hins vegar hefur hæstv. fjmrh. eindregið óskað þess, að það yrði ekki dregið lengur að afgreiða málíð og að annað og þriðja málið fylgist að. Því tel ég rétt að mælast til þess, að umr. fari nú fram. Ég gef þá yfirlýsingu, að ég mun geyma að ræða málið þar til við 3. umr., þar sem einn maður minni hl. er fjarstaddur, en það eru tilmæli mín, að málið gangi áfram.