10.12.1946
Sameinað þing: 16. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 178 í D-deild Alþingistíðinda. (4912)

267. mál, afnám veitinga á kostnað ríkisins o. fl.

Flm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Í þessari þál. er í fyrsta lagi lagt til, að hætt verði að veita áfengi í veizlum, sem ríkið og stofnanir þess halda. Ef sú regla er upp tekin, tel ég ekki vonlaust, að aðrir taki sér forstöðumenn ríkisins til fyrirmyndar að þessu leyti. Gæti það orðið til þess að bæta samkvæmislífið yfirleitt, en þess mun vissulega vera þörf. Í till. er í öðru lagi lagt til, að afnumin verði sú regla, sem gilt hefur undanfarið, að einstakir valdamenn í þjóðfélaginu fái keypt áfengi í vínverzluninni án verzlunarálagningar og tollfrjálst. Ég tel það ekki viðeigandi, að einstaklingar njóti á þennan hátt sérréttinda hjá einkasölum ríkisins. Þar eiga allir að búa við sömu viðskiptakjör. Eftir að ég bar fram þessa till., hef ég heyrt, að sömu menn njóti einnig hlunninda hjá Tóbakseinkasölu ríkisins. Ef svo er, tel ég, að þau ætti einnig að afnema, og gæti það komið til athugunar í þeirri hv. n., sem fjallar um málið. Ég tel óþarfa að fjölyrða um þessa till. Finnst mér eðlilegt, að umr. verði frestað og till. fari til allshn. til athugunar.