25.04.1947
Sameinað þing: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í B-deild Alþingistíðinda. (591)
12. mál, fjárlög 1947
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Ég vildi nú gjarnan, að hæstv. samgmrh. hlustaði á þau fáu orð, sem ég ætla að segja, hann mun vera hér á næstu grösum. Ég hef ekki flutt hér neinar brtt. við 2. eða 3. umr., ekki þó sökum þess, að það væri ekki eitt og annað í mínu kjördæmi, sem ég kysi að fá fé til fram yfir það, sem gert er ráð fyrir, heldur blátt áfram af því, að ég skil ekki vel, hvar staðar á að nema um útgjöldin, sem ákveðin eru fyrir ríkissjóð, sem ýmsum virðast þó of lág. Sérstaklega er það ein till. hér, sem (fyrir utan till. um 15% lækkun til verklegra framkvæmda) hefur orðið þyrnir í augum margra. Hún mun vera frá hæstv. fjmrh. og um það að heimila ríkisstj. að fella niður framkvæmdir, ef ástand í atvinnu- og fjármálum gerir það nauðsynlegt. Ég fyrir mitt leyti mun greiða atkv. með þessari till. Það er að vísu dálítið vafamál, hvort á að veita stjórninnt slíka heimild eða ekki, en það, sem einkum gerir það að verkum, að ég greiði atkv. með henni, er það, að þegar ríkisstj.. gerir það að fresta einstökum framkvæmdum og hafa fjárlög að engu í því efni, þá kýs ég fremur, að slíkt sé löglegt, en ólöglegt. Því tel ég réttara að samþykkja þessa till. en láta átölulaust, ef ríkisstj. hefur í heimildarleysi ákvarðanir Alþ. að engu, eins og síðasta stjórn hefur gert og, sjálfsagt fleiri ríkisstjórnir. Hvað viðvíkur mínu kjördæmi, hef ég þó ekki reynt neina ríkisstj. að því að brjóta jafnfreklega af sér í þessu efni og fráfarandi stjórn. Á síðasta þingi voru veittar fjárupphæðir til nokkurra tiltekinna vega í kjördæmi mínu, sem ekkert var síðan unnið að, og ef svo á að vera, sýnist þó réttara, að það sé löglegt og samkvæmt fjárlögum.
Ég kvaddi mér hljóðs til þess að spyrja hæstv. samgmrh., hverju þetta sætti, sú meðferð, er mitt kjördæmi varð fyrir s.l. ár. Ég aðvaraði hæstv. ráðh. um það fyrir stundu, að ég ætlaði að tala um þetta, en sé nú að hann er ekki viðstaddur.
Ég vil þakka fjvn. fyrir, að hún hefur yfirleitt — eða það, sem hún eftir atvikum hefur séð sér fært — tekið þær óskir mínar til greina, er ég bar fram við hana í haust, og reyndar síðan, og er það önnur aðalástæðan til þess, að ég hef ekki flutt brtt., að mér finnst n. hafa vikizt sanngjarnlega við málum míns kjördæmis. Ég álít þó, að það kjördæmi sé ekki neitt sérlega hugstætt hv. fjvn., og af því að ég verð að viðurkenna, að n. hefur vikizt fremur vel við áhugamálum míns kjördæmis, verð ég að álykta út frá því, að svo hafi verið víðar um land. Mig furðar því á fjölda brtt. við fjárlagafrv. og tel þær að mestu ástæðulausar, og ég mun greiða atkv. gegn flestum eða öllum þeirra, sem bornar eru fram af einstökum þm.
Ég veit ekki, hvort hæstv. samgmrh. hefur heyrt fyrirspurn mína áðan, en hún var um það, hví nýbygging vega í Eyjafjarðarsýslu hafi verið látin niður falla s.l. sumar, þótt fé væri fyrir hendi, sem veitt var á síðustu fjárlögum, og ég vil bæta við þeirri fyrirspurn, hvort óttast þurfi, að svo verði framvegis eins og síðasta ár. Í næstu sýslum var unnið hiklaust að vegum, en um tvo vegi í Eyjafirði. sem við þm. sýslunnar lögðum áherzlu á og voru mjög nauðsynlegir, fór svo, að við þeim var ekki hróflað, ekki einni þúfu.