21.10.1947
Efri deild: 7. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1148)

17. mál, búfjártryggingar

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

tregar þetta frv. var hér til 1. umr., var því lýst yfir, að það væri flutt að beiðni ráðh. Við 2. umr. hafði n. ekki tekið afstöðu til þess. Frv. var tekið fyrir á fundi n. fyrir 3–4 dögum. Þá vantaði einn nm. (EE), en hinir nm. eru á einu máli um að Leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt. Mér þótti viðkunnanlegra að láta þetta koma fram hér, því að það lá ekki fyrir, þegar framsaga var í málinu hér í deildinni.