06.10.1947
Efri deild: 3. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (122)

2. mál, gagnfræðanám

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það eru hliðstæð ákvæði í þessu frv. eins og í hinu, sem nú var vísað til menntmn. Hér er um að ræða breyt. á l. um gagnfræðanám, en í hinu tilfellinu um menntaskóla. Ég legg til, að þessu máli verði einnig vísað til menntmn. og 2. umr. að þessari umr. lokinni.