09.12.1947
Efri deild: 29. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1014 í B-deild Alþingistíðinda. (1387)
103. mál, innflutningur búfjár
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Ég þarf ekki mörg orð um þetta mál. Það lá fyrir þessari d. í fyrra og var afgr. frá henni, en dagaði uppi í Nd. Nú er það flutt aftur eins og það fór frá henni. Er það borið fram að ósk hæstv. landbrh., sem sendi n. það til flutnings. Ég skal bara minna á það, að þau ákvæði, sem eru í þessu frv. um innflutning búfjár, eru öll til að skerpa verulega það öryggi og eftirlit, sem á að vera með innflutningi búfjár, og jafnframt að skapa grundvöll fyrir, að það sé hægt að framkvæma það, en í því efni er mjög áfátt nú. Eftir að frv. var á ferðinni í fyrra, hefur það gerzt, að ríkið hefur keypt Engey og vafalaust hugsað sér hana sem framtíðareinangrunarstað fyrir innflutta gripi, hverjir sem þeir kunna að verða á ýmsum tímum.
Ég geri ráð fyrir, að þar sem málið var rætt svo mikið í fyrra, einkum þó í sambandi við annað frv., að ekki þurfi að ræða það mikið nú. þar sem það er flutt af n., sé ég enga ástæðu til að vísa því til n. aftur.